Fréttir frá 88 Húsinu |
fimmtudagur, 17 apríl 2014 | |
Ráðstefnan Ungt fólk og Lýðræði var haldin á Ísafirði. 88 Húsið sendi báða fulltrúana sína úr Ungmennaráði Reykjanesbæjar þær Özru Crnac og Thelmu Rún Matthíasdóttur. 0 % hreyfingin heldur áfram að nota húsið og fékk nýverið úthlutan skáp í húsinu undir sitt dót. Þau munu taka á móti erlendum gestum í sumar og gista í húsinu. Mikill undirbúningur hefur staðið yfir að undanförnu vegna opnun Ungmennagarðsins sem verður opnaður formlega fimmtudaginn 24. apríl kl 15.00 |