Geimverur, draugar og dulræn málefni. |
þriðjudagur, 27 apríl 2010 |
Nú verður skemmtilegasti fyrirlestur ársins hér í 88 Húsinu. Magnús Skarphéðinsson ætlar að koma og heimsækja okkur miðvikudaginn 5.maí klukkan 20:00 og halda fyrirlestur um geimverur, drauga, dulræn málefni. Magnús hefur nokkrum sinnum áður heimsótt 88 Húsið og iðulega hefur verið troðfullt hús. Á fyrirlestrinum mun Magnús sýna myndir af geimverum og draugum einnig verða myndskeið spiluð .Við skorum því á þig að mæta og verða vitni af flottasta fyrirlestri ársins. Þess má geta að Magnús hefur getið sér gott orð sem formaður Sálarrannsóknarfélags Reykjavíkur.
|