Spunaspilaklúbburinn eins árs |
miðvikudagur, 27 október 2010 |
Ýmir heldur upp á eins árs afmæli í 88 Húsinu og ætlar að því tilefni að gera eitthvað skemmtilegt saman. Myndir um og eftir spunaspilara, spuna nörda umræður og svona eitthvað skemmtilegt í þeim dúr. Elsti meðlimur klúbbsins verður einnig heiðraður og við gerum upp árið og sjáum hvort ekki sé hægt að gera enn betur á næsta ári. |
Fifamót og eldri deild Tónó í heimsókn |
föstudagur, 15 október 2010 |
Skipulagning stendur yfir á stóru Fifamóti í samstarfi við NFS - nánari fréttir berast inn á síðuna um leið og þær koma í hús...
Eldri deild Tónlistaskóla Reykjanesbæjar er með lánaða efri hæðina lánaða þriðjudaginn 19. september undir videó kvöld... |
miðvikudagur, 13 október 2010 |
Starfssemin í 88 Húsinu hefur verið í föstum skorðum. Húsið er mikið notað undir Lan þessa dagana. Einnig eru spunaspilverjar duglegir með sitt starf en þeir hafa hist undanfarið ár í 88 Húsinu.
88 Húsið bauð upp á forvarnardag ungra ökumanna á dögunum í samstarfi við BS, lögregluna, FS og FFR. Dagurinn heppnaðist mjög vel og fengu allir grillaðar pylsur í dags lok:)
Allar ábendingar hugmyndir um starfið eru vel þegnar á tölvupóstfangið
Þetta netfang er varið fyrir auglýsingasendum, þú þarft að virkja JavaScript til að skoða póstinn
|
Opnunartími 88 Hússins í vetur:) |
þriðjudagur, 07 september 2010 |
Opnunartími 88 Hússins og Svartholsins verður sem hér segir í vetur - mánu- til fimmtudagar opið frá 16.00 - 19.00 og frá 20.00 - 23.00. Að auki er opið frá 14.00 - 17.00 á laugar- og sunnudögum. Lokað verður á föstudögum. |
Ljósanætur tónleikar 88 Hússins |
miðvikudagur, 18 ágúst 2010 |
Ljósanætur tónleikar 88 Hússins og Landsbankans voru haldnir fimmtudaginn 2. september sl. Tónleikarnir heppnuðust mjög vel. Myndir eru hér. Eftirtaldir léku á tónleikunum...
Rapparinn Authentic the exception The Assassin of a Beautiful Brunette Stjörnuryk Hljómsveitin Hinir Sgt. Millers Misbehavious Daughter Ramses A day in december Rapparinn Ástþór Óðinn Reason To Believe SkyReports |
Forvarnarfræðsla 88 Hússins |
miðvikudagur, 21 apríl 2010 |
Starfsfólk 88 Hússins heimsótti nemendur í Fjölbrautarskóla Suðurnesja miðvikudaginn 21. apríl s.l. í samstarfi við lögregluna og fræddi nemendur um skaðsemi reykinga. Sýnt var forvarnarmyndband og áhugaverðar umræður sköpuðust. |
mánudagur, 19 apríl 2010 |
Já það er rétt það sem þið heyrið, 88 húsið er komið aftur með playstation3 og fjórar fjarstýringar einnig erum við búin að kaupa hinn geisivinnsæla leik FIFA 2010. Búið er að bæta öryggið í húsinu með myndavélum sem taka upp 24-7. Spila klúbburinn ýmir er en á sínum stað á þriðjudögum og fimmtudögum kl 20:00.
Ekki vera innipúki... komdu og skemmtu þér með skemmtilegu fólki. |
Spunaspila klúbburinn Ýmir |
mánudagur, 08 mars 2010 |
Spunaspila klúbburinn Ýmir er búinn að hittast í allan vetur á þriðjudögur frá klukkan 20.00 - 23.00 á þriðju- og miðvikudögum. Þau sem vilja kíkjá þennan ört vaxandi klúbb geta kíkt við og skoðað hvað fer fram:) Einnig er hægt að setja sig í samband við klúbbmeðlimi inn á facebook... |
|
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
Niðurstöður 73 - 80 af 80 |