föstudagur, 22 febrúar 2013 |
Á dögunum fór fram árlegur forvarnardagur ungra ökumanna í 88 Húsinu um 150 nemendur á fyrsta ári í Fjölbrautaskóla Suðurnesja tóku þátt.
Markmiðið með verkefninu er að vekja ungmennin til umhugsunar um þá ábyrgð sem fylgir því að fá bílpróf, fækka umferðaslysum og auka öryggi í umferðinni. Nemendur fengu fræðslu um afleiðingar umferðarlagabrota, sektir, tjónaskyldu og brot gegn 3ja aðila, þau fengu að prufa ölvunargleraugu. Sviðsett var umferðarslys á planinu við 88 Húsið og fengu nemendur að sjá hvernig lögregla og sjúkraflutningamenn athafna sig þegar slys verður og klippa þarf bíl í sundur. Eins og undanfarin ár voru grillaðar pylsur handa öllum þátttakendum. Forvarnardagur ungra ökumanna er samstarfsverkefni Reykjanesbæjar, Lögreglunnar á Suðurnesjum, Brunavarna Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Tryggingamiðstöðvarinnar.
|