Nú má heldur betur búast við Guitar Hero æði í 88 húsinu næstu vikur vegna þess að nýjasti Guitar Hero leikurinn er kominn í hús en hann verður eflaust ótt og títt spilaður þar sem fyrri leikirnir hafa notið mikilla vinsælda í húsinu. Nú er lag að kíkja í heimsókn og rokka feitt á gítarinn og æfa sig þar sem í vændum er Guitar Hero mót.